Bookmark and Share
Taekwondo Ísland fréttir sem RSS
Fréttir
Fréttir
Fréttir: 11/3 2010
Dómaranámskeið TKÍ

Helgina fyrir Íslandsmótið (21 mars) verður haldinn fyrri hluti dómaranámskeiðs TKÍ þar sem verður farið yfir breytingar á keppnisreglum. Einnig verður verkleg kennsla fyrir hornadómara og bardagastjóra. Öll félög þurfa að senda lágmarki 1 dómara fyrir hverja 10 keppendur á Íslandsmótinu. Við vonumst einnig til að allir kennarar, aðstoðarkennarar og hærri belti úr félögunum nýti sér þetta námskeið svo hægt verði að hafa fleiri dómara á næstu mótum. Allir sem dæma á Íslandsmótinu þurfa að sækja þetta námskeið.

Námskeiðið verður þríþætt :
1. Kennsla og þjálfun fyrir Íslandsmótið. 21. mars.
2. Dómgæsla á Íslandsmótinu. 27. mars.
3. Eftirfylgni eftir Íslandsmót. Farið yfir helstu atriði, kosti galla við dómgæsluna á mótinu. Hvað þarf að laga ofl. Dagsetning auglýst síðar. (1-2. maí er líkleg dagsetning)

Dagskrá :
Laugardagur 20. Mars kl. 14-16 – kynning á reglubreytingum, stigaskori, nýju keppnisfyrirkomulagi ofl. Fyrir keppendur og kennara. Verð kr 1.000 kr á mann.
Sunnudagur 21. Mars kl 13-16 – dómaranámskeið, fyrri hluti. Verð kr 2.000 á mann.

ATH að þeir sem fara á dómaranámskeiðið fá allar þær upplýsingar sem verða gefnar á laugardeginum auk réttinda til að dæma á Íslandsmótinu. Það þarf því ekki að mæta báða dagana, en til að fá dómararéttindi verður að mæta á sunnudaginn.

Kennari á námskeiðinu verður Sigursteinn Snorrason, alþjóðlegur dómari og yfirdómari Íslandsmótsins í kyorugi 2010. Kennsla fer fram í Combat Gym, Ármúla 1.
12 ára aldurstakmark.

Skráningarfrestur 18. Mars.
Skráning og upplýsingar á spark@internet.is




Fréttir: 6/10 2010
Systurnar Grace og Chloe Bruce eru heimsklassa bardagalistakonur sem verða með æfingabúðir og sýningar á Selfossi og í Reykjavík í september.
 
Fréttir: 15/7 2010
Við óskum eftir að félög sendi inn dagskrá næsta árs, svo unnt sé að samræma viðburði.
 
Fréttir: 9/7 2010
Þá er komið að því að blása til fyrstu Taekwondo-útilegunnar
Útilegan verður að Brautarholti á Skeiðum, á tjaldstæðinu þar.
 
Fréttir: 31/5 2010
Fimmtudaginn 20. maí sl. var ársþing TKÍ haldið í ÍSÍ. Fullur salur var af fulltrúum frá flestum taekwondo félögum á Íslandi.
 
Fréttir 16/5 2010
Haldið verður sumarnámskeið fyrir U&E (12-16 ára) þann 21. – 25. júní hjá Combat Gym í Ármúla 1.
 
Fréttir: 10/5 2010
Þá verður efnt til fyrstu taekwondo útilegunnar sem sögur fara af á Íslandi. Dagskráin verður auglýst síðar og hún verður skemmtileg fyrir alla fjölskylduna jafnt iðkendur sem og alla hina.

 
Fréttir: 10/5 2010
Taekwondo-deild Ármanns blæs til krakkamóts í poomse þann 19. maí kl 16. Við áætlum að mótinu verði lokið kl 18.
 
Fréttir: 5/5 2010
Fimmtudaginn 20. maí n.k. kl 20:00 verður haldið ársþing taekwondo sambands Íslands (TKÍ).
Fundurinn verður í fundarsal D 3. hæð ÍSÍ Engjavegi 6.
 
Fréttir: 5/5 2010
Hjá Ármann Taekwondo-deild er sérstakt æfingaprógramm fyrir sérvalda iðkendur. Æfingar eru til viðbótar við hefðbundnar æfingar og er þá alls æft í 10 klukkustundir á viku, 5 daga í viku.
 
Fréttir: 1/5 2010
Brotmót Ármanns fór fram s.l. laugardag og tóku samtals 43 þátt á mótinu. Keppt var í þrautabraut, hraðabrotum, sýningarbrotum, kraftbrotum og hópakeppni og voru flestar keppnisgreinar fyrir alla aldurshópa.
 
Fréttir: 26/4 2010
BS-Bikarmótaröðinni lauk í dag eftir gríðarlega spennandi keppni, bæði milli einstaka keppenda og félaga.
 
Fréttir: 19/4 2010
Ársþing Taekwondosambands Íslands verður haldið í húsnæði ÍSÍ, við Engjaveg í Laugardal, fimmtudaginn 20. maí 2010.
 
18 Apríl 2010
Í fyrsta skipti heldur TTU sumaræfingabúðir í Danmörku. Æfingabúðirnar eru opnar öllum.
 
Fréttir: 14/4 2010
Verður haldið laugardaginn 24. apríl 2010 kl 13:00
Mótið er fyrir alla aldurshópa og öll félög
 
Fréttir: 14/4 2010
Þriðja og síðasta mót bikarmótaraðarinnar 2009-2010 verður haldið helgina 24-25. apríl 2010.
 
Fréttir: 4/4 2010
Þann 27.mars fór fram Íslandsmeistaramótið í sparring. Mótið var haldið í Keflavík og tóku flest félög á landinu þátt.
 
Fréttir: 17/3 2010
Nú fer að styttast í Íslandsmótið og skráningu lýkur í kvöld. Dómarafyrirkomulagið verður með þeim hætti að hornadómarar fá greitt 150 kr. fyrir hvern bardaga sem þær dæma og bardagastjórar 300 kr.
 
Fréttir: 14/3 2010
Haldið var námskeið U&E um helgina. Námskeiðið tókst mjög vel og komu krakkar frá flestum félögum landsins. 2016 hópurinn æfði líka með sem og þjálfarar frá nokkrum félögum.
 
Fréttir: 13/3 2010
Keppt var eftir nýju reglunum, með öllum breytingum, í LaJust brynjum með Video Replay.
 
Fréttir: 11/3 2010
Helgina fyrir Íslandsmótið (21 mars) verður haldinn fyrri hluti dómaranámskeiðs TKÍ þar sem verður farið yfir breytingar á keppnisreglum.
 

 
© Copyright Taekwondo Ísland 1994-2010 Generated by ECM